Hello again! Ég ákvað að skrifa ekkert í gær því það var hreint ömurlegur dagur!! Fór í fyrsta skipti í krítik og gekk allt í lagi mín skissubók var ekki mikið skoðuð sem betur fer. Svo þjáðist ég af svo mikilli heimþrá að fór í strætó til Dísu og fékk að gista hjá henni(fór að sofa klukkan 20.00....nerd!)
Allavega þá er dagurinn í dag ekkert mikið skárri, fór í skólann og skildi ekki rass. Á að gera e-ð verkefni með brenninetlu veit ekki meir..helvítis flókna danska!!!
Fór svo í Sonofon sem er skítasímafyrirtæki hér til að kvarta, því það getur enginn náð í mig því það er alltaf e-r kelling sem heitir Gitte sem svara í mitt númer!!! Ljóti kallin í Sonofon sagðist ekki skilja hvað vandamál mitt væri og sagðist ekki geta gert neitt svo ég rauk bara út með látum...
Nú er hjá Dísu að reyna að hressa mig við, meika ekki í tómlega og sorglega herbergið mitt:( Þetta er nú meira vælið í mér..ég er hætt að væla!!
Kveðja Þórdís

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home