Toby in der Stadt

miðvikudagur, mars 10, 2004

Svaf út og lærði heima út af stressi. Miklu betra en að hanga í teiknistofunni og hlusta á viðbjóðslega tónlist.
Fékk eftirlætisstarfið mitt í kvöld sem er að passa litlu pulsuna.
Maður þarf ekkert að hafa fyrir þessu lengur hann slekkur bara sjálfur á Tomma og Jenna, klæðir sig í náttföt og svo í rúmið.
Á meðan get ég borðað ís og lært.

Jæja anyways það er komin páskafiðringur í mig.
Hlakka ekkert smá til að fá íslenskt páskaegg, fara á bæjarins bestu, kaupa svindl og kók í Skara og svo framvegis........
....21 dagur eftir...Jibbí!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home