Toby in der Stadt

föstudagur, apríl 23, 2004

Eyddi gærkvoldinu í penthúsinu hennar Sólveigar. Við horfðum á nýjan þátt af sex and the city og frilluna hans Beckhams í sjónvarpinu, hakkandi í okkur Chicago Town pizzur. Danarnir sem búa með Sollu eru held ég mjög hneykslaðir á okku, við erum allt of miklir kanar.
Anyways dreymdi svo í nótt að ég ætti að leysa af Steinunni Ólinu í Chicago, ég var sett á sviðið þótt ég kynni ekki tekstan né að syngja..alveg hryllilegt! Ég barasta varð að sofa til hádegis eftir allt þetta stress!!
Er nú orðin single mum þar til á morgun. Unga fólkið fór í sukkferð út á land svo ég tók það að mér að passa mesta kríli í heiminum. Er svo búin að hakka í mig osterejer sem er svona ostapoppalúlla...vúff er barast orðin háð þessum anskota, kannski eru til samtök fyrir svona fíkla.... ostereje-anoymous?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home