Úllalla..nú skrifa ég fyrsta bloggið mitt með nýju dásamlegu tölvunni minni..ég er sko In Love, hún er svo yndisleg blessunin:)
Anyways komum frá Hamborg í gær og það er sko skemmtileg borg, fórum í söfn, búðir, veitingastaði..bara mjög fínt. Samt verð ég að segja að hórurnar standa upp úr. Fór í hóruhverfið með Ingva, Robba, Svölu og Dídi...þær voru allar í dúnúlpum með svona peningapung framan á sér..litu ekkert smá eðlilega út. Það er eins gott að maður mæti ekki í dúnúlpu til hamborgar, það yrði bara boðið í mann um leið...GRÓS!!
Jæja svo er skólinn á fullu og engin miskun, fékk LEYFI til að hitta pabba í mat í hádeginu..helv. dönsku gribburnar leyfa manni ekki neitt..svo fara þær bara snemma heim og láta eins og ekkert sé úff ég vorkenni dönskum strákum enda eru þær ansi miklar mottur og tilfinningaverur..
Anyways gleymdi símanum mínum í bílnum hjá familíunni svo ég er föst upp í skóla..ef þið lesið þetta komið og náið í mig:(

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home