Low


Fór til Köben í gær með Sollu að hlusta á Kid Dakota og Low. Bara mjög fínir tónleikar fyrir utan það að söngvarinn í Low var í brjáluðu skapi og hótaði að hætta að spila af því að hátalarinn hans var e-ð skrýtinn...úff en í lokinn náði konan hans að tala hann til og hann baðst afsökunar á stælunum... Og sem gúppíur enduðum ég og Solla með eiginhandaráritun og disk með Kid Dakota!
Frekar spælandi að geta bara stoppað í eitt hvöld en það er kritik á morgun og ég er ekkert rosa góð í verkfræði:(
Anyway ég þoli ekki þennan skóla núna...var búin að teikna húsið mitt upp í AutoCAD en ég get ekki prentað það út því að skólinn hefur ekki forritið í tölvunum sínum og krítik á morgun...hvers kona arkitekta skóli er þetta.. Svo ég ætlaði að laumast í prentarann sem mesta nördið í bekknum er með en hann var stíflaður..damn, en einka tölvuvinur minn í bekknum sá hvað ég var stessuð svo hann bauðst til að taka teikningarnar mínar með sér heim og sjá um þetta..nice guy!! Stressið verður svo losað með fredagsbar á morgun sem að þessu sinni er með rassa ívafi..rövebar!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home