Veðrið í Árósum er að flippa út, maður fer út í sumarveðri og sumarkjól og hleypur svo heim frosin i snjóstormi.
Fór í afmælispartí hjá Sollu í penthousinu um helgina sem var mjög gaman, svo er fullt að gera í skólanum. Eigum að skila prógrammi fyrir 4000m2 skrifstofu bygginu á mánudag...hm sounds like fun!
Svo til að auðvelda manni allt eru strætóbílstjórarnir hérna súrir og keyra bara þegar þeim sýnist. Eru kannski að fara í þriðja verkfallið núna og ég held þeir séu líka að missa það því áðan þegar ég var í strætó þá stoppaði bílstjórinn stætó og fór á skyndibitastað...hann kom samt skömmu seinna og ég komst heim.
Svo er ekki mikið annað að segja en að ég kem heim í páskafrí 10. april og verð í 6 daga:)
Nokkrar vandræðalegar myndir frá penthousinu, get ekki sett fleiri inn því tæknin var að stríða mér:

Afmælisbarnið

Ástríður

Ég, ljóti hatturinn og Solla

Lára og lundinn voru óaðskiljanleg allt kvöldið

6 Comments:
jibbí, jibbí, jibbí kóla! Ég er rosalega ánægð að heyra að þú komir heim!! Ég var nefnilega alveg búin að afskrifa það. Einar Arnar sendir þér þúsund kossa í tölvuformi,
xx Rúna og co.
fyndið þetta með strætóbílstjórana - rétt að skreppa og snæða smá, hahaha.
oh eg er buin ad tapa numerinu thinu thordis thvi eg fekk mer nytt simafyrirtæki.ætladi ad fara ad hringja i thig til ad sja hvernig stemningin væri i skolanum hja ther..gætirdu sent mer thad i sms-i svo vid getum kannski hist sma...eg lendi amk i arosum a morgun kl 18
sjaumst
hb
Jó! hann heitir Þorgrímur! Altsaa.. Hvernig myndi þér líða ef einhverjir lundar myndu tala um þig sem stelpu í staðin fyrir Þórdísi?
En æðislegt að þú sér að koma heim:-D
Eini böggurinn fyrir mig er sá að þá verð ég úti :(
Þið verðið bara að updata mig að öllu :-D
Asta
hehhhehe... ég man ekki betur en hann Þorgrímur hafi verið á milli okkar beggja allt kveldið heheheh. He is hot!
bara ad segja takk fyrir sidast og eg vona ad thad hafi gengid vel i dag i skolanum..heyrumst hb
Skrifa ummæli
<< Home