Ohh var að tala við pabba...I miss him:( Er að passa litlu pulsuna mína(Snorra) og borða nammi...Er alvarlega að spá í að stoppa á leiðinni heim á sjúkrahúsi og láta dæla úr mér...Eitt og hálft toblerone(100g), drakúlabrjóstsykrar og 100 heksehyl(lakrís með brúnu inni í ). Allt blandað saman med líter af pepsí....pjúk!!!!!
Kvöldið í gær var æði borðaði íslenskt nammi og horfði á þátt um Ísland í danska sjónvarpinu. Dreymdi samt furðulega eftir þetta:...Ég og Dísa ætluðum að fara í heimsókn til Íslands með flugi sem átti að taka 20 mín. Ég var að koma surprice heim svo ég var sett í gám sem hékk neðan úr flugvélinni. það átti að opna mig eins og jólapakka þegar ég kæmi heim. Anyways svo kunnu flugmennirnir ekkert að fljúga og flugvélin hrapaði...ég var mjög móðguð því ég var ekki í flugbelti...blabla Við slösuðumst allavega ekki og ákváðum bara að hætta við ferðina:)....Ég er orðin snarbiluð held ég. Gruna að Heksehylið sé á bak við þetta... Ég hélt alltaf að ég myndi grennast en þetta nammi er ekki að hjálpa til...ætli ég verð ekki send í gámi heim eftir allt saman:/
Kveðja Toby Toblerone(passar furðu vel við)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home