Systurnar � Singstar


Fór í afmæli til Dídi á laugardaginn sem var rosa gaman, tókum Sing star og svona sem ég auðvitað tapaði í as usual:(
Fór svo í bekkjarferð til Boesdal sem er í lengst á Sjálandi. Eigum að gera upp gamla kalkverksmiðju og planleggja svæðið í kringum hana. Mjög spennó bara viðbj. mikið að skordýrum, engisprettum, köngulóm og ég veit ekki hvað og hvað. Svo var mús inni í herberginu sem við sváfum í og grós köttur sem kom inn á næturnar. Sem sagt allt mjög áhugavert. Er þessa stundina að horfa á Bold and the Beautiful eða Glamor eins og það er kallað hér, ekkert sérlega erfitt að komast inn í þetta aftur þar sem að Ridge, Eric og öll Forester famlillían eru gamlir félagar mínir. Svo virðist sem Thorn er að stela tískuteikningum fjölskyldu sinnar...sjæse man!

5 Comments:
Ég hef aldrei sungið í sing star - þú vinnur mig örugglega enda laglaus dama með endæmum
ég hef prófað einu sinni - væri til í að prófa aftur, tjékka á sönghæfileikunum.
Til hamingju með afmælið hjá stóru syss!
Flottur fjólublái kjóllinn:)
haha, ég elska singstar
Langt síðan ég hef horft á B&B!!!
Þurfum að fara að koma með nýja sögu í Bold and the Beautiful after Dark. Kannski að við getum send HB eina slíka sögu :)
Híhíhíhí
Ásta
Skrifa ummæli
<< Home