Toby in der Stadt

mánudagur, nóvember 14, 2005


Gisela


Jacob og co með Coco Rosie

Jæja já soldið langt síðan ég bloggaði síðast...hvað hefur gerst hmmm..
Fór á MJÖG MJÖG góða Coco Rosie tónleika hér í bæ og það vildi svo vel til að Jacob og bandið hans fékk að hita upp OG OG OG spila með Coco Rosie eitt lag.. Sem gömul grúppía gat ég ekki staðið á mér og fékk eiginhandaráritun baksviðs, keypti bol, plaggat og nýja diskinn sem ég átti bara á tölvunni. Sem sagt bestu tónleikar ever. Fór svo aftur á tónleika í gær með Animal Collective sem voru mjög góðir því miður endurtók sama sagan sig þ.e.fékk eiginhandaráritun á diskinn minn.....yikes held ég sé eilífðar unglingur:(

Jamm og nýjasta nýtt þar sem það er í tísku núna að eignast barn ákvað ég að gerast móðir! Afkvæmið heitir Gisela og er lítill krúttí gullfiskur. Hef eina mynd af litla krúttinu með (hún var því miður með Extreme diaria þegar myndin var tekin....)
Setti myndir frá haustfríinu inn á myndir4

8 Comments:

At nóvember 15, 2005, Blogger Asdis said...

Þú grúppía ha hvað meinaru ? Hver man ekki eftir BLUR tímabilinu, ég vona bara að það komi ekki aftur.
ps. Gisela er algjört krútt

 
At nóvember 15, 2005, Blogger Rúna said...

úff... já sammála síðasta ræðumanni. Fríkí myndin af gyðingasafninu en hinar mega skemmtilegar og ekki fríki sem sagt. Jæja, best að halda áfram að bíða eftir að fæða (arg)
Vitum þó eitt að næst þegar við hittumst verður lífið örlítið öðruvísi!
Sakna þín Tóbs.
xx Rúna

 
At nóvember 15, 2005, Blogger Rúna said...

Gleymdi Giselu kúkagullfiski!... til hamingju með dömuna;o)

 
At nóvember 15, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Jii minn, gleymi aldrei þegar þú og vinkonur þínar Stalkeruðu Blur. Og þá var nú bara grátið yfir því að Damon ætti kærustu. Krúttlegt ha... Segi eins og Dísa , vonandi gerist það ekki aftur.
Svo fékk ég nú svona gæsahúð út um allt þegar þú sagðist vera mamma, hélt stundarkorn að þú værir ólétt.
Hrefna

 
At nóvember 16, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

hey var e-d tveir fyrir einn tilbod i gangi i gullfiskabudinni?fekk jakob ekki litid sili lika?eda ertu atrax buin ad stela hans?eda er sameiginlegt forrædi?
hey hitt xtra sam um daginn.gaman ad thvi.a blast from the past.eins og gruppiuædid...
hb

 
At nóvember 16, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

omg en gaman að þú eigir núna gæludýr, thumbs up fyrir Giselu litla krútti.

wellllll, ertu e-d farin að huga að jólarheimkomu, vil fá þig heim á klakann sem fyrst

xxx ms

 
At nóvember 18, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

hæhæ, til hamingju með móðurhlutverkið;)

Hervör

 
At nóvember 18, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn! Mig dreymdi þig í nótt... frekar fyndið. Þú og Jacob voruð búin að kaupa RISAstórt hús í Århus. Það var girðing í kringum allt húsið, það var í soltið gamaldags stíl og svo var stór sundlaug sem nánast þakti allan garðinn. En já, fannst þetta eitthvað fyndið :o) Vona að þið hafið það gott, og við sjáumst milli jóla og nýárs.
Knus frá mér og Vic

 

Skrifa ummæli

<< Home