Toby in der Stadt

þriðjudagur, maí 02, 2006

Langt síðan ég hef bloggað eins og vanarlega...ekki síðan fyrir páska!
Nú já hm.., flugið heim frá ísl. gekk vel. Tók eina chill pillu sem Allan læknir lét mig fá svo ég varð MJÖG chilluð, fór næstum í ranga flugvél og beið við vitlaust töskuband. Komst samt heil á höldnu í páskamat til Dísu eftir 5 tíma lestarferd!

Fór svo með bekknum til Hamborgar í síðustu viku sem var surprisingly skemmtilegt því ég þoli nánast engan sem er með mér í bekk. Ég gisti með danskri bekkjarsystur minni sem er ólétt af tvíburum svo ég var vel á verði til að smitaðist ekki.

Ákvað að læra heima í dag því maður fær ekkert næði fyrir vatnsdrekkandi gellunum í bekknum mínum sem fara svona tvisvar á mínútu til að fylla á og pissa:(

Anyways, var að fá vínil plötu sem ég pantaði á netinu með 2 lögum frá uppáhalds hljómsveitinni minni, Arcade fire . Er ekki frá því að þetta er eitt fallegasta lag í heimi OG samið fyrir skemmtilegustu seríu í heim, Six feet under. Hér er lagið COLD WIND

Get ekki sett myndir með því tölvan er í fílu, prófa aftur seinna!

2 Comments:

At maí 04, 2006, Blogger Rúna said...

Hæ Tób!

Loksins heyrir maður frá þér, kíki vongóð á hverjum degi að lesa eitthvað nýtt. Vissi ekki að þú værir ekki í DK.
kossar og knús,

Rúna og Einar Arnar og Sverrir

 
At maí 05, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Já mjög gaman að lesa loksins blogg :-D
Keep up the good stuff !!!
Asta

 

Skrifa ummæli

<< Home