Toby in der Stadt

laugardagur, september 16, 2006

Haudí hó, er alls ekki nógu dugleg að blogga en ég þakka Kristínu fyrir spark í rassinn. Anyway, það er æði að vera í Dk núna, sólbaðsveður á hverjum einasta degi. Er búin að vera á stuttermabol á hverjum degi í skólanum. Í síðustu viku er búið að vera workshop, þar sem við áttum að búa til rumligt forlöb úr við, svo ég er búin að vera að negla, saga, bora og fleira alla vikuna sem er ekki slæmt í svona veðri:) Svo er búið að vera festuge i Árósum sem mér finnst nú ekkert rosa gaman því þá er allt of mikið af liði í bænum og allir fullir og svona. Samt soldið skemmtilegt þema sem var Womania, sem sagt var þemað bara Konur. Það voru hengdir brjósthaldarar um allan bæ og gamlar konur látnar sitja á stólum sem voru neglir hátt upp á húsveggi bæjarins sem var reyndar soldið weird en þeim gömlu fannst þetta gaman. Set tvær myndir með af skiltum sem voru út um allan bæ sem varaði gellur í háum hælum við lélegum götu. Mjög sniðugt þar sem mikið að stelpunum hafa eyðilagt skónna sína hér í bæ.
Er búin að vera á tónlistarhátíð í nýja stúdentahúsinu síðust tvö kvöld, alls konar bönd frá mörgum löndum sem eru misskemmtileg, fer svo á síðustu tónleikana í kvöld. Verð að fylla mig af kaffi og kóki áður svo ég sofni ekki eins og síðustu kvöld vegna byggingaþreytu;)
Nokkrar myndir frá síðustu vikum:


Ástríður og Helgi gera teikniborðin klár, borðið hans Helga er eins og vanalega óaðfinnanlegt


Varað við notkun hárra hæla, hm ekki vandamál fyrir mig


Save to walk


Það myndaðist stríðsástand á heimilinu þegar þetta loðna ógeð hljóp yfir gólfið


Nærmynd af flykkinu


Bumbumynd úr afmælinu hennar Ásdísar, Sif er núna búin að eiga lítinn strák


Mynd af ferlíkinu sem við smíðuðum í workshop, aðalatriðið er nú gangurinn í gegnum en ég á eftir að taka mynd af honum


Uppáhalds gatan mín í Aarhus


Mr. & Mrs. T


Snilldar tvöfalt kvennaklósett í stúdentahúsinu þar sem og ástríður eyddum góðum stundum

7 Comments:

At september 17, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Kósí íbúð sem þið eruð með.. fyrir utan kóngulóna!! Langaði bara að segja hæ .. verðum að fara hittast :S Kannski um jólin eða eitthvað..

 
At september 17, 2006, Blogger Asta 阿斯塔 said...

jei...ég er einmitt búin að vera að bíða eftir bloggi :-D

Gott hjá þér Kris!!!

Það er líka mjög heitt í Kína. Maður er alltaf í pilsi og á hlýrabol.

Skórnir manns eyðileggjast líka hér, kannski að Bejing ætti að hafa svona dag!!! Bara sniðugt :)

Keep up the good work!!!!

 
At september 17, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

oh en sniðugt þetta með skilitin. Eg var einmitt búina að gleyma thessu alveg með DK og göturnar hérna. Fór í háhæluðum út um síðustu helgi og festist nokkrum sinnum ;)
Blogga meira meira! :>
xxx Magga

 
At september 18, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Ég ætlað líka að segja..gaman að sjá mynd af Dísu. Hún lítur ekkert smá vel út.

bkv Ásta

 
At september 30, 2006, Blogger Rúna said...

Hæ Tóbs!
Takk fyrir beiðnina um daginn - maður gleymir sér stundum í amstri Íslands, hehe - einmitt!
Einar Arnar biður þig um að koma sem fyrst í heimsókn því hann er farinn að gera svo margt sniðugt sem hann er svo spenntur að sýna þér og J.
Ekkert smá huggó allt hjá þér og J - ég sé að ég ætti að geta gengið með þér um götuna sem varar háhæluðum komun að ganga! Enda maður svo svakalega hávaxinn að háir hælar gera mann bara vandræðalegan;o)
xx Rúna

 
At nóvember 01, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Thank you!
[url=http://qfuutpnh.com/lgmo/fgcb.html]My homepage[/url] | [url=http://jxburpxf.com/czjj/tgar.html]Cool site[/url]

 
At nóvember 01, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Great work!
http://qfuutpnh.com/lgmo/fgcb.html | http://kdqywime.com/dtro/xrzu.html

 

Skrifa ummæli

<< Home