Toby in der Stadt

sunnudagur, nóvember 05, 2006

Mig langar að þakka Rúnu fyrir beiðnina:
Hér kemur formleg beiðni!

Vinsamlegast skrifaðu nýtt blogg mín kæra Þórdís,

Virðingafyllst
Guðrún Guðmundsdóttir


Nah, framhaldssaga af pianóinu. Við áttum að hafa fengið á miðvikudegi en það gerðist ekkert, Kobbi reyndi að hringa í 2 daga án árangurs svo ég sendi hann beinustu leið í búðina að rífa kjaft. Anyways þá kom það í ljós að sölumaðurinn sem seldi okkur það lenti í slysi svo þeir seldu píanoið sem við vorum búin að borga fyrir:( Þetta fór samt allt vel að lokum, fengum síðasta stykkið sem var svona prufupíano í búðinni og 20000 auka afslátt, VEI!

Er búin að vera í haustfríi, gerði stór plön um ferðalög og enn eina Berlínardvöl en ekkert gerðist svo ég eyddi fríinu upp í sófa að spila Broken Sword 1 og 2 ekkert smá nördalegt. Skellti mér samt á 2 tónleika með Arab strap og The hidden cameras sem voru báðir æði. Hátindur frísins reyndist svo vera ferð til Randers regnskov sem er svona innandyra regnskógur ...kinda sad:/

Fór með Kobba til köben um helgina á Sparklehorse í Vega, fínir tónleikar fyrir utan það að ég þurfti bara að flýja út af reyk, takk HB og Anders fyrir kampavín og gistinu:)

....Yes sir, svo er ég búin að panta far heim um jólin, kem 23.des og fer heim 30. jan minnir mig, cant wait!

Nokkrar myndir úr haustfríinu:



Kobbi og Snorri horfa á Pétur pan, sem var á íslensku svo Snorri snaraði öllu yfir á dönsku fyrir Jacob, líka lögunum:)


Snorri burstar



Gripurinn loksins kominn í hús



Mjög lýsandi fyrir ástandið í hausfríinu



Krókudílar að kela í Regnskóginum mikla....



Jacob in the jungle


Didi og co. í Wok mataboði hjá okkur

6 Comments:

At nóvember 05, 2006, Blogger Rúna said...

cool! loksins blog:o)
Ekkert smá skemmtilegt að þú sért komin með píanó heim til þín. Ýkt gaman að heyra í þér "live" áðan - bíð spennt að fá ykkur heim um jólin... verðum að halda litið afmæli fyrir ykkur heimsborgarana (þ.e. 1 árs EA afmæli)

Kysstu Ásdísi frá mér og mínum gaurum:ox

xx Rúna

 
At nóvember 06, 2006, Blogger Hrefna said...

Alltaf gaman að sjá eitthvað nýtt hjá þér. Skemmtó myndir...Snorri er ofurkrútt...að þýða myndina fyrir Kobba er nú bara það krúttlegasta!!

 
At nóvember 10, 2006, Blogger Rúna said...

já, ég sé Snorra alveg fyrir mér að þýða - með krúttí röddina sína. Að syngja og alles. Væri til í að fá hann í heimsókn til mín:o)
xx Rúna

 
At nóvember 10, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

hej sæta, rosa gaman ad lesa bloggið þitt. omg já hvað þetta er sætt með að snorri hafi verið að þýða fyrir jakob, litla krúttið.
xxx Maxy

 
At nóvember 11, 2006, Blogger Asta 阿斯塔 said...

Það var nú kominn tími á nýtt blogg :)
Og ekkert smá gaman að sjá myndir af ykkur öllum!!!

Ég væri nú til í að heyra Snorra þýða, gvuð já örugglega algjört krútt :9

Þúsund kossar

 
At nóvember 12, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Verðum að hittast um jólin .. komin tími á það :D Ég kem heim 23.des og fer aftur 7.jan :D Hlakka til :D

 

Skrifa ummæli

<< Home